Þegar mataráskrift er skráð tekur hún gildi fyrsta dag næsta mánaðar.
Skráning áskriftar þarf að eiga sér stað í síðasta lagi 25. dag mánaðar.
Uppsögn á áskrift fer nú fram á „Mínum síðum“ inn á Sportabler.
Sjá leiðbeiningar – Uppsögn áskriftar
Uppsögn þarf að berast fyrir 25. dag mánaðar og tekur gildi fyrsta dag næsta mánaðar.
Ef breyta á fullri áskrift í staka áskrift:
Segja þarf upp núverandi áskrift (full áskrift) fyrir 25. dag mánaðar. Þessi áskrift verður virk fram að næstu mánaðarmótum.
Skrá þarf síðan nýja áskrift (stök áskrift) fyrir 25. dag mánaðar. Þessi nýja áskrift virkjast svo 1 dag næsta mánaðar.
Nemandi heldur áfram sama pin númeri
Ef breyta á stakri áskrift í fulla áskrift:
Segja þarf upp núverandi áskrift (stök áskrift) fyrir 25. dag mánaðar. Þessi áskrift verður virk fram að næstu mánaðarmótum.
Skrá þarf síðan nýja áskrift (full áskrift) fyrir 25. dag mánaðar. Þessi nýja áskrift virkjast svo 1 dag næsta mánaðar.
Nemandi heldur áfram sama pin númeri
Fjölga eða fækka dögum í stakri áskrift:
Þegar óskað er eftir að fjölga dögum í stakri áskrift þá þarf að skrá inn sér viðkomandi áskrift hvort sem það er einn dagur eða fleiri.
Sé óskað eftir að fækka dögum þá þarf að segja upp viðkomandi dag eða dögum. Sjá leiðbeiningar – Uppsögn áskriftar
Nemandi heldur áfram sama pin númeri.
Aðrar breytingar þurfa að berast á netfangið matartiminn@matartiminn.is síðasta lagi 25. dag mánaðar til að taka gildi næsta mánuð. Taka þarf fram bæði nafn og kennitölu nemanda og greiðanda.